MIRRA.

lifið er svo yndislegt .

12.08.2008 20:14:39 / mirra

Það er svo gaman að flytja ;)

Jamm það er svo gaman að flytja að ég er búin að flytja mig í bloggheiminum ;)

Á spáni kom ég mér upp nýja síðu fyrir allar myndirnar sem eru bara geggjaðar og að vera á spáni er bara GEÐVEIKTTTTTTTTT.

Nýja siðan er 123.is/gij

Endilega kíkja og ekki gleyma að skrifa smá fréttir að þið hafið kíkt :)
Love ya all

KV Soffía Fluttningsfríkin.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 09:14:04 / mirra

Þessi yngri Sonur minn !!!!!!

Góðan daginn !!!

Ég ætla nú ekki að hafa þetta langt en ég verð að segja ykkur frá einu sem minn litli prins var að lenda í ........

Þannig er að hann fór heim með ömmu sinni um daginn eftir leikskólann og var hann Esra lika þar svo þeir fengu að fara einir niður á stakkó að leika sem þeir gera nú oft þegar þeir eru hjá ömmu sinni . Og voru þeir þar í smá tíma en þegar þeir komu heim sá amma að þeir voru eitthvað súrir svo hún spurði þá hvort það væri ekki allt í lagi og þeir litu á hvorn annann og síðan sagði Gabríel ömmu sinni að það hafi verið eldri strákar svona ca: 10 ára strákar á stakkó og þeir voru eitthvað leiðinlegir við sig og Esra .......... amma sagði að það hafi nú ekki verið fallegt af þeim að vera leiðinlegir við yngri stráka og við vorum sko fljótir að vera sammála ömmu en síðan spurði hún þá hvort þeir hafi verið eitthvað leiðinlegir við en Esra og Gabríel voru fljótir að segja NEI en síðan sagði Gabríel við ömmu sína eina sem ég sagði við þá þegar þeir komu á stakkó að þeir væru HOMMAR !!!!

Amma varð smá hissa og sagði við Gabríel að það mætti ekki segja og hann var sko fljótur að svara ömmu sinni " Jú það er ekki ljótt orð " Æi amma gat nú ekki sagt við krílið sitt að þetta væri ljótt orð svo samtalinu var eitt með því að amma sagði við strákana að þer ættu ekki að vera segja eitthvað við elri stráka !!!

En annars er bara allt gott að frétta frá Birkihlíðinni sem er alltaf að breitast meir og meir ........ það gengur bara vel að klæða en bara þegar veður leifir. Og nú styttist í að við förum út og erum við sko farin að telja dagana því okkur öllum hlakkar svo mikið til .

Við biðjum að heilsa í bili en látum heyra fljótt aftur í okkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 11:25:23 / mirra

ÚBBSSSS............. Frekar lélegt ......

Hjá mér að vera ekki búinn að skrifa hér neitt lengi , lengi , lenggggiiiiiiii ....... en ég er nú með mjög góða afsökun að ég verð nú bara að nota hana ;)
Þannig er að það er bara alveg nóg að gera hér á bæ ........ erum byrjuð á fullu að klæða húsið og gengur það bara nokkuð vel hjá okkur ............... eða hjá köllunum ég fæ nú bara að sjá um kaffið og með því og síðan ferég og klappa þeim á bakið til að halda þeim við efnið ..............tístttt..... en án gríns þá er þetta bara að ganga súper vel og er það nú veðrinu eiginlega að þakka hvað það hefur nú verið gott svo við höfum getað verið úti . En ég er sko á fullu að taka myndir af hverri breytingu sem verður og mun ég setja þær fljótlega inn ég er búin að búa mér til myndasíðu á picasaweb.google.com/eyjagengid en það eru engar myndir komnar en en ég lofa að fara setja inn myndir af húsinu ;)

Annars er sko bara gott að frétta héðan Gabríel er búinn að útskrifast af leikskólanum ............ jamm það var svona inni/útileiga það var þannig að þau mættu á leiskólann sínn á sínum tíma ( hann kl 09.) og var bara venjulegur dagur en klukkan 16:00 þá kom rúta að ná í þau og fóru þau í óvissuferð sem endaði inni í íþróttahúsi og þar fengu þau sko að leika sér og var það sko vel nýtt síðan eftir það var röllt niðrá á sóla og þar fengu þau pizzu síðan var bara háttað og horft á dvd síðan sofnuðu þau eitt og eitt minn maður var víst með þeim fyrstu sem sofnuðu en líka næstum því með þeim fyrstu sem vöknuðu ............... en þá var drifið sig að ganga frá og fá sér morgunmat síðan komu forledrar um klukkan 10 í útskrift sem bara flott þau voru öll svo prúð og fín . Þar var þeim afhent útskriftarplagg og fengu þau handklæði í gjöf frá foreldrafelaginu síðan var boðið upp á köku og kaffi . Svo nú bíður minn maður eftir 1 júlí því þá hættir hann alveg á leikskólanum ............ mömmunni kvíður smá fyrir að hann hætti það er svo gott að vera með barn a leikskólanum þetta er svo örugt hverfi en þau verða nú lika að fá að stækka og þorskast............... og það gerir hann sko því hann er að fara í skóla ;)

 Nú líður að því að skólinn fari að verða búinn að hjá systkyninum svo það eru allir voðalega spenntir að komast í frí og ég tala nu ekki um að komast út í sólina 28 júlí .............. við erum öll voðalega spennt að fara út .

Ég fer í frí 14 júlí og það verður sko bara ljúft að vera heima og í fríi . Unnur og kjell koma til okkar núna 25 júni svo það styttist og eru krakkarnir hrikalega spenntir að fá þau og hún Guðrún María hennar Sylvíu er líka voðalega spennt að fá þau hingað .......... heheheh ........ það er sko alltaf fjör þar sem þau eru .

Jæja núna ætla ég að láta þetta duga í bili en reyni að setja inn myndir sem fyrst :)

Knús og kossar til ykkar allra

Og Gleðilegt SUMAR !!!!1


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 16:22:26 / mirra

Hver er eiginlega munurinn ??

 

Jæja nú ætla ég að breita til og vera ekkert að segja fréttir af mér og minni fjölsk  því það er hreinlega bara ekkert að frétta !!!!

Dagarnir okkar eru bara þannig að við förum í vinnu og skóla síðan erum við öll komin heim um klukkan 19:00 og þá er borðað og síðan er farið að læra og litli mann fer í háttinn síðan er bara glápt á imbann og þá er bara dagurinn búinn og svona eru allir dagar en það fer vonandi að breitast því við vonumst til þess að við getum farið að byrja á að klæða húsið ............... um leið og veðrið fer að vera betri ;)

En mig langar að segja ykkur litla sögu af stelpu sem ég þekki............ Margir hafa heyrt hana en hún er alltaf jafn skemmtileg ..................

En ég tek það fram að ég nota ekki rétt nöfn sögunni svo ég segi bara litla stelpan og vinkona hennar ..........Tístttttt.

Þannig var að einu sinni var litil stelpa og góð vinkona hennar eiginlega frænka hennar á leið á rúntinn og þá varð litla stelpan fyrir þeirri leiðinlegu reynslu að keyra á lítin kettling svo vinkonurnar fóru aftur inn til mömmu og pabba litlu stelpunnar með litla kettlinginn og auðvita grenjuðu þær eins og þær væru á samning hjá Gullfoss því dramatíkin var svo mikil og hét litla stelpan því að hún myndi ALDREI keyra aftur ALDREI en það varði ekki lengi því pabbi litlu telpunnar dreifa hana út og sagði þeim að fara bara á rúntinn og hann fengi bróðir litlu telpunnar til að fara með kettlinginn á góða stað og samþykktu þær það og fóru á rúntinn........................ en eftir smá stund á rúntinum sáu þær að það hefði einhver annar keyrt á kött nema hann var ekkert að hafa fyrir því að taka köttin og fara einhvert með hann svo þær vinkonur drifu sig út úr bílnum og tók litla greyið og ætluðu sko að gera góðverk dagsins .Þær drifu sig heim til að spyrja stóra bróðir hvað hann hefði gert við litla kettlingin og hann sagði við þær að hann hefði bara farið með hann í BRENNSLUNA því hann hefði ekki vita hvar hann ætti að jarða hann.Vinkonurnar brostu og drifu sig með látna köttin í brensluna til að geta nu gert góðverk dagsins ................ eftir að hafa gert það fóru þær í smá stund á rúntinn aftur voðalega ánægðar með sig að hafa gert þetta og töluðu allan tímann um hvað sá sem hefði nú keyrt á köttin hefði nú getað gert hið sama en ekki að keyra bara í burt. Eftir góða stund á rúntinum nenntu þær ekki meir og fór heim til að hafa það bara kósý og glápa á tv en þegar þær komu heim tók stóri bróðir á móti þeim og voru þær sko fljótar að segja honum að það hefði verið læst í BRÆÐSLUNNI svo þær settu bara köttin í pokanum á hurðahúnin .................. Bróðirinn var smá skrítin á svipinn og sagði síðan við þær............. Eru þið ekki að stríða mér ?? Þið fóruð ekki í bræðsluna er það ??

JÚJÚ við gerðum eins og þú sagðir okkur að þú hefðir gert við hinn köttinn............ Þá sagði Bróðirinn STELPUR MÍNAR ÉG FÓR Í BRENNSLUNA EN EKKI BRÆÐSLUNA!!!!!

ÚBBBSSSSS hver er eiginlega munurinn ???

 

Knús og kossar Soffía Kattarvinur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 16:44:10 / mirra

JÁ JÁ ég veit að ......

 

............... febrúar er búinn og ekki tekur betra við ........ Mars með með rosalegum miklum snjó að annað eins hefur ekki sést síðan 1968 svo þið getið rétt ýmindað ykkur. Svo nú er maður alveg að gefast upp a þessum vetri ....... Þeir sem standa heilir upp úr þessum vetri þeir eru hetjur því ekki er ég að geta það . Hef aldrei verið svona oft veik eins og ég er búin að vera á þessu ári........ Fékk væna innflúensu í febrúar síðan núna í byrjun mars fékk ég gubbuna og allt sem henni fylgir síðan í dag fór ég að hitta bæklunarsérfræðinginn minn“ sem skar mig upp nota bene í nóv „ því ég er bara ekki orðin nógu góð í hnéinu og viti menn hann stakk bara einni sterasprautu í hnéið og sagði að þetta ætti nú að fara lagast en það er líka eins gott því ekki nenni ég að vera svona í sumar NEI TAKK ....................... Hér með þakka ég fyrir þennann pakka sem mér var sendur en ég endursendi hann og þeir sem vilja hann geta vitjað hans upp í sorpu !!!!

Á morgun verður miðlungurinn minn 12 ára VÁ að hugsa sér

12 ÁRA............. þetta er of fljótt að líða en samt yndislegt því þau eru öll svo heilbrigð hjá mér og allt hefur gengið vel.

En það er eins og ég hafi átt hann í gær þegar ég fer að hugsa um daginn sem hann fæddist ............. Alexander er alltaf á unda sér og það sannaðist best þegarég missti vatnið því það átti að vera en 10 dagar i áætlaðann fæðingardag svo minn maður er alltaf að flýta sér ;) en hann er alveg yndislega rólegur strákur og er sko fiskur í hnotskurn því hann siglir bara allaf með öllum en er sko samt mjög skapstór þegar á reynir.En hann er alveg rosalega duglegur í skólanum og þar þarf hann sko ekki að hafa fyrir hlutunum ( eins og Alli frændi sinn ) getur bara mætt í próf án þess að vera eitthvað mikið búin að æfa sig en samt fær hann 10 og hann elskar enskutímana hjá Lóu ( frænku ) svo hann á örglega eftir að vera eitthvað mikið.......... Hann er ofboðslega kelinn og er alltaf tilbúinn að tjá tilfingar sínar hvar og hvenar sem er og við alla , hann er alltaf svo þakklátur með all sem hann fær þó að það sé bara eitthvað oggupínu þá er alltaf eins og hann hafi verið að fá gefins gullpott .................Alexander er rosalega góður strákur eins og hin börnin mín eru ( auðvita verð ég að segja þetta því ég á þau og þau eru alveg eins og mamma sín......tístttttt ) Nei þau eru bara frábær.

Ég spurði Alexander hvað hann vildi í afmælisgjöf þá sagði hann við mig að við þyrftum ekkert að gefa honum en ég sagði að við ætluðum að gefa honum auðvita afmælisgjöf þá sagði hann kannski væri bara gott að fá gjaldeyri til að kaupa sér eitthvað út á spáni í sumar................ síðan hefur hann aldrei viljað halda eitthvað bekkjarpartý bara viljað hafa fjölskylduna og kósý en núna sagði hann mamma ég væri alveg til í að bjóða bekknum mínu í smá fjör við getum bara horft á eitthvað og verið voðalega stillt ............ heheheh svo mikil dúlla þessi esska !!! Svo um helgina verður öruglega bekkjarpartý hér á bæ og óska ég sko eftir HJÁLP ............ heheheheh.................nei segi svona þetta veðrur örugleg ekkert mál ;)

 

Jæja best að fara ath með litla trippið á bænum hann neitar að koma inn eftir leikskólann því honum finnst svo gaman úti í snjónum ( það er nú ekki mikið eftir af honum þar sem það er búið að rigna svo mikið SEM BETRU FER ) en við biðjum að heilsa í bili .......

 

Tjá Tjá Soffía Ungamamma...............

P,S Minni á að þeir sem vilja þennann pakka sem ég er að bjóða þá er bara að hafa samband við sorpu ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 08:47:33 / mirra

Hvenar ætli

 

.......................Febrúar verði búinn er sko búin að fá nóg af honum !!

Þannig er að það er ekki bara búið að vera ógeðslegt veður.......nei líka nóg af veikindum. Fyrst var hann Gabríel og Alexander veikir og það í rúma viku síðan varð ég veik og var heima í hálfan mánuð .........komst í vinnu fyrst á mánudaginn síðasta en því miður náði ég ekki að vinna í heila viku því á föstudaginn ( í gær) var hann Gabríel heim með gubbupest..........hvar endar þetta allt saman ??

Mikið verð ég feginn þegar þessi vetur verður búinn því þá er ég vonandi búinn með alla veikindapakkann á þessu heimili.

 

Jæja snúum okkur að góðu fréttunum......................Við erum að fara til Spán !!!

Jamm erum búin að bóka og staðfesta ferðina ;) og við erum öll orðim voðalega spennt þó að það sé svolítið langt í ferðina en ég er viss um að sumarið verður mjög fljótt að líða þegar það kemur !!!

Við ætlum að fara 28 júlí og koma heim 11 Ágúst svo þetta verður sko bara geggjað .

Held að það sé fínnt að vera hér á eyjunni mest allan tíman af sumrinu loksins þegar það kemur og fara síðan út í lok sumar bara eðins til að framlengja þvi smá síðan mæta allir ferskir í skólann..................heheheheh....................jamm það fara allir í skóla á þessu heimili .Sylvía er að fara í framhaldskóla og litli mann er að fara í fyrsta bekk....................jerimía það er komið að því að hann er að fara í skóla . Verð að viðurkenna að ég er smá stressuð að vera setja hann i skóla ........ÆI það er svo gott að vita af þeim á leikskóla því það er allt svo örugt þar en auðvita er líka örugt í skólanum nema að þau eiga að sjá um sig sjálf og það verður nú eitthvað !!!

En ég er voðalega heppin því mamma og pabbi eiga heima við hliðina á skólanum svo hann fer bara til þeirra eftir skóla og verður hjá þeim þangað til ég verð búin í vinnu svo ég er MJÖG HEPPIN sumir eru nú ekki svona heppnir og verði því að láta börnin sín á skóladagheimilið þangað til að þeir eru búnir í vinnu.

Jæja litli mann er orðinn svangur ( enda ekkert búinn að borða síðan á fimmtudag) svo það er  eins gott að fara gefa honum eitthvað að borða síðan ætlar hann að sofa hjá ömmu Báru í nótt því við skutuhjúin erum að fara á þorrablót í kvöld .

 

Biðjum að heilsa í bili en læt heyra fljótt aftur í okkur.

Hilsen Soffía og co.


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 10:18:30 / mirra

Innflúensa .......................

Góðan daginn allir !!! 

Jæja þá er ég að komast í gang eftir leiðinda innflúensu L Já ég náði mér í leiðinda pest og er búin að vera svo lasinn að ég hef ekki komist í vinnu í hálfan mánuð svo mikið er ég búin að vera lasin.Þetta byrjaði með að ég missti röddina en var samt alveg hress en síðan helltist allt hitt yfir mig kvef,mikill hiti ,ljótur hósti og dúndrandi hausverkur að annað eins hef ég ekki lennt í ............... þannig að ég dreif mig til læknis því mér stóð ekki á sama með allan þennann hausverk og hann tók sýni og það varð strax jákvætt að ég væri komin með innflúensuna og væri þar með önnur manneskjan hér i eyjum sem væri komin með þetta ógeð , mér var skaffað lyf og send heim og læknirinn sagði að þetta gæti sko tekið tíma því ég væri komin með öll einkennin og kannski myndi þessi lyf ekki virka því maður verður að vera komin á þau innan við tvo daga og ég var a þriðja degi en samt vildi hann prófa og ég held að það hafi ekki verið að virka því ég versnaði bara ....................... síðan á föstudagskvöld var hausverkurinn svo mikill að ég var farin að verða stíf í hnakkanum og auðvita urðum við hrædd um heilahimnubólgu því þetta var svo mikið !!! 

Að hann Gummi hringdi á lækni og hann sagði að þetta væri svona og ég yrði bara að vera dugleg að liggja og reyna sofa síðan lét hann mig taka aðrar töflur ofaní allar hinar sem ég var með svo ég var komin á sterkan kokteil ............... ummmmm........................ síðan svaf ég bara eiginlega i 7 daga og borðaði ekkert en svo fór þetta allt að koma og ég fór að vakna aftur til lífsins og núna er ég bara orðin nokkuð hress .....................

Og ég ætla að drífa mig í vinnu á morgun ................. vá hvað ég verð fegin að komast aftur i vinnu því það er sko ekki gaman að hanga svona ein heima allan daginn ,

 Nei þá vil ég frekar vera í vinnu ;)

En á meðan ég var heima i þessum veikindum tókum við eiginlega ákvörðun að skella okkur út í sumar með krakkana ( ekki er veðrið hér búið að vera eitthvað skemmtilegt ......... komin með ogeð af þessu veðri )

.................... jamm við ætlum að reyna fara 28 júlí – 11 Ágúst .......heheheh jamm yfir þjóðhátíðina!!!! Við ætlum að fara til Alicante og vera í húsinu hjá Sigga og Hjöllu minni , þau ætla að koma hingað og vera í mínu húsin á meðan ( góð skipti ) Verð að viðurkenna að ég er mega spennt að vera fara svona í sólina með fjölskylduna ;) Jæja þetta kemur allt í ljós fljótlega en núna ætla ég að fara stjana við litla mann við erum bara tvö komin á fætur og minn maður vill fá að borða helst strax ...............tísttttt...............mjög ákveðin ungur strákur á ferð .ÆI verð að segja ykkur hvað hann sagði þegar við vorum að tala um að fara til spánar í sumar.

Hann sagði við mig ................... Mamma hvernig á ég að tala á Spáni ?

Á ég kannski bara að segja alltaf yes og no ?Bara dúlla þessi elska !!!

Læt heyra fljótt aftur í mér .

 Soffía.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 10:46:18 / mirra

Leiðinda Veður og Leiðinda Pesttt !!!

 Vá frekar pirrandi ég var sko búin að skrifa fullt síðan þegar ég ætlaði að festa það fór allt ........veit ekki hvort ég nenni að skirfa allt aftur L

En ég sé til hvað ég nenni að skrifa ......hummm......byrjum á fimmtudeginum þá fór ég í vinnu klukkan 09:00 en var komin heim 09:10 með hann Gabríel frekar mikið lasinn hann var kominn með 39° svo við fórum bara beint upp í rúm og lögðum okkur eða við sváfum fram að hádegi þá kom hann Gummi í matinn og hún Sylvía líka en Gabríel var nú ekkert að vakna fyrir þau nei hann svaf til að verða hálf tvö þá kom litli mann fram svo lasinn og lagðist í sófann og fór að horfa á teiknimyndir síðan fór hann aftur upp í rúm um klukkan fjögur og svaf til að verða sjö og þá er minn maður sko lasinn þegar hann fer sjálfur upp í rúm að leggja sig ;)Þannig að helgin byrjaði snemma hér á bæ nema ég fór í vinnu fyrir hád á föst en fór síðan heim og þá fór hann Gummi i vinnu .

Ég fór aðeins í bæinn með pabba eftir hád á föst á meðan litli mann svaf tl að versla eina böndadagsgjöf og það tókst mjög vel enda ekki erfitt að finna eitthvað handa bónda mínum ;) síðan fór ég bara heim og hafði það kósý með strákunum .................. jamm Alexander var líka orðinn slappur og var bara heim og óska maturinn hjá þeim var pizza ( á bóndadaginn ) en hvað gerir maður ekki fyrir krílin sín ??Svo auðvita hfðum við bara pizzu en höfðum síðan bóndadagsmatinn á laugardaginn og var það Lundaveisla........ummmmmm........... alltaf jafn gott.Sunnudagurinn var líka frekar rólegur hér þar sem strákarnir voru frekar slappir en við pússluðum saman góðu sunnudagskaffi .......ummmmm........ jamm og tókst það mega vel enda við best í að hrista eitthvað gott fram úr erminni .

Gummi var úti með Kása að reyna laga skúrinn okkar ( hann var að far í rokinu ) a meðan vorum við inni að græja kaffi við gerðum vöfflur , skyrköku, heitt brauð fundum til lax og ristað brauð, skinkusnúða og lagtertu ...........ummmm......allt frekar flott það var bara eins og það væri afmæli þetta var svo mikið hlaðborð hjá okkur enda endaði með því að við vorum um 9 manns í kaffi.

Amma Bára kom Ása og Addi komu líka síðan var hún Guðrún María okkar hér og síðan kom hann Kási líka upp í kaffi til okkar . Svo það vara Partý hja okkur.En síðan var farið bara snemma að sofa hér á bæ þar sem það hefur nú ekki verið mikið um svefn hér um helgina LEn í morgun ákvað ég að fara með strákana mína upp á spítala til að láta hlusta þá því þeir eru Svooooo slappir og viti menn Gabríel er kominn með kokkana og fékk pensilín síðan er hann Alexander með svo mikið kvef að í hvert skiptið sem hann snýtir sér blæður hrikalega úr nefinu svo hann fékk einhverjar töflur til að þurka upp slímhúðina svo núna ætti þetta allt að fara koma hér bæ................ Eða ég vona það !!!!

Jæja nú styttist í að við förum að fá hana Þórínu okkar heim og auðvita hann Hjalla líka ;) þetta er sko búið að vera svaka ævintýri hjá þeim og þið geið lesið allt um það á bloggsíðunni hennar blog.central.is/torb og þar eru líka myndir af öllu fjörinu.

Jæja Best að fara þjóna rislingunum mínum hvað gerir maður ekki fyrir þá ??

 

Tjá Tja Soffía og Lassarussarnir mínir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 16:31:34 / mirra

JÆJA Næsti leikurinn er á eftir...

ÆÆÆ......... Leikurinn á móti Svíþjóð gekk ekki alveg nógu vel en þetta kemur ( verðum að vera jákvæð ) .

Allt gott að frétta af brikihlíðinni og sko betur en það ...... jamm alltaf svo notarleg heit hér á bæ.Núna sit ég og drita eitthvað á bloggið mitt og með rauðvínglas við hendina ................ Æi við vorum að klára að taka allt fínnt til hjá okkur skúra og sjæna svo maður á nú skilið að fá sér eitt rauðvín fyrir og jamm ég bakaði líka bananabrauð handa okkur og auðvita eitt handa Natalíu og Kása ;).........hehheheheh....... Gummi fór að horfa á leikinn síðan ætlum við að elda okkur osta og parmskinku fyllta svínalundir með öllu tilheyrandi .......... jammý jamm og auðvita ætlum við sko að horfa á leikinn og kalla áfram Island ;)

En kvöldið á bara að vera rólegt og notarlegt ;)

Frá Þránheim er sko allt gott að frétta þau öll svaka ánægð þar og Þórina siss er sko alveg búin að láta HM vita að hún er þarna úti ( Ég sem hélt að hún hafi verið að fara á Em en ekki HM ) hehehheheheh en Bara gott hjá henni hún er búin að setja inn myndir á síðuna sína sem allir geta kíkt á síðan er hægt að fara inn á ibliduogstridu.is og þar getur maður sé hvað er að gerst í Norge ( langar svo að fara til Osló það er svo gott að vera þar í rólegheitum ....ummmmm..... ) en það verður vonandi gert í haust .

 

Hlakkar sko til þegar þau koma heim og maður fær allar fréttirnar og myndirnar nema það er svo langt þangað til því Hjalli og Þórina ætla að vera úti í hálfan mánuð :( en það er svo fljótt að líða ;) Enda er vinarvika að byrja á leikskólanum og þá verður vikan fljót að líða ......... æi það er svo gaman í vinnunni í vinaviku allir svo jákvæðir og allt bara svo gaman enda vinn ég á besta stað sem hægt er að vinna á og síðan er þessi vinna svo gefandi maður fær að vera með krökkum allan daginn í leik og fjöri BARA GAMAN...........

 

Jæja best að fara græja sig fyrir leikinn og gera allt klárt auðvita fylla aðeins á glasið mitt :lol:

Bið að heilsa í bili.......

Kv Soffía meðLIMUR í ALKAKLÍKUNNI !!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 17:28:26 / mirra

JEY JEY !!!

jamm nú er sko gaman þar sem Em er að byrja í kvöld ;)

Verður spennandi að fylgjast með og ekki nóg með það þá er hún Þórína siss og Hjalli bró á staðnum svo ég fæ að fylgjast aðeins betur með hvað er að gerast fyrir leik og hvað gerist eftir leik......... Væri sko alveg til í að vera þarna með þeim því þetta er sko öruglega mega stuð :)

En vildi bara láta ykkur vita ef þið vissuð ekki að EM væri að byrja .............. Tísttttttt ........... Fyrsti leikurinn er á móti svíþjóð og við verðum nú að vinna !!!!!

Bless Bless í bili

ÁRAM ÍSLAND ...........


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 15:11:35 / mirra

Jólin Yndisleg !!!!

Góðan daginn og Gleðileg Jól !!!Héðan er sko allt gott að frétta og höfum við sko haft það gott eða bara eiginlega frábærlega gott ;)Og jólin voru yndisleg .............. Bára var hja okkur á aðfangadag og höfðum við auðvita hamborgarahrygg sem heppnaðist svona líka frábærlega bráðnaði upp í okkur ena Gummi snildarkokkur ;) Síðan var ráðist á pakkaflóðið sem beið okkar og ég er að segja ykkur það að það var sko flóð að við vorum í nokkra klukkutíma að opna .......... bara frábært , krakkarnir fengu svo mikið að ég næ sko ekki að telja það upp hér en ég þakka öllum fyrir þessar frábæru gjafir þetta var ekkert smá flott allt.Við fengum líka mikið en síðan fékk ég bara flottar gjafir frá honum Gumma........jamm gjafir því hann gaf mér þrjár gjafir og síðan fékk ég líka 4 pakka frá sveinka svo þetta er svolítið mikið ........Ég fékk húfu , vettlinga ,trefil og Angúrusokka frá seinka síðan fékk ég Buxur , skó , skyrtu , tvenn vesti , gjafaöskju með dag og næturkremi og síðan fékk ég videócameru geggjað ................ svo það er verið að taka allt upp sem gerist hér á bæ er reyndar en að læra á hana svo þetta kemur smátt og smátt !!!Jæja síðan eru það Áramótin og verða þau sko bara flott við verðum heima hja Elliða og Berthu og takk fyrir við verðum um 30 manns svo það verður sko bara geggjað stuð þar á bæ o ætlum við að borða saman öll og hafa það kósý. Við vorum þar í fyrra og var það bara gaman o voru krakkarnir með okkur allan tíman eða til að verða 06:00 ........heheheheh.......enda var svo gaman að það var ekki hægt að hætta JJæja nú er mín að baka rúgbrauð því við erum að fara í mat til Báru ( Ingó og Fjóla voru að koma ) svo við ætlum að borða öll saman í kvöld rúgbrauð og síld og auðvita lax og síðan verður bara svona sitt lítið af hverju..........alltaf best svoleiðis.Við biðjum að heilsa í bili og ÓSKA ÉG ÖLLUM GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG ÞAKKA FYRIR ÞAÐ GAMLA !!!!Hlakka til að takast á við nýja árið því það er svo margt skemmtilegt framundan hjá litlu fjölskyldunni á Birkihlíð JTjá Tjá Soffía.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 09:00:06 / mirra

Vá hvað allt líður hratt !!!!

Já mér finnst allt líða svo hratt !!!

Litli prinsinn minn varð 5 ára í gær ég meina 5 ÁRA mér finnst eins og ég hafi átt hann í gær en nei það eru sko komin 5 ára og hann er svo stolltur að vera loksins orðin 5  ára því það er sko búið að bíða lengi eftir þvi .

En við vorum með svaka veislu í gær ......... það byrjaði með því að við fengum 6 stráka í smá strákapartý og var það sko svaka fjör og gekk bara eins og í sögu því þeir voru svo góðir við höfðum þetta partý frá 2-4 og vorum með pulsu og köku síðan þegar allir gæjarnir voru farnir þá urðum við að græja næsta holl því við buðum fjölsk í mat klukkan 19:00 og var það sko svaka fjör hér vorum um 25 manns í mat og fjörið var geggjað og fóru síðustu gestirni um klukkan 23:30 svo dagurinn var frekar skemmtilegur og fjölmennur......... og auðvita fékk ég svakalega mikið af pökkum . Takk fyrir það allir ;)

Mamma hafði kjúllapottrétt í matinn með öllu tilheyrandi síðan bauð hún uppá kaffi , koníak ,rauðvín og konfekt svo það var svaka kósýheit hér á bæ :) Æi þetta er alltaf svo notarleg stund svona rétt fyrir jólastressið og alllir eru eitthvað svo afslappaðir að sitja hér að þetta er frábær jólasiður sem við höfum tekið uppá .

Jæja þá er það þorláksmessan í dag og þá er alltaf nóg að gera.......annars verður bara rólegt hér á bæ því við erum eiginlega búin að öllu , ég og Gabríel ætlum til Ásu í skötupartý síðan ætlum við að rölta í bæinn svona bara til að fá smá jólafíling Gummi verður að vinna í allan dag eða til 10 í kvöld svo ég verð bara að dúllast með krökkunum.

En núna ætla eg að fara klára aðeins að ganga frá eftir partýið í gær ....... Við biðjum að heilsa og óskum öllum

GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLT NÝTT ÁR.

Og hafið það sem allra best um hátiðirnar.

KV Soffía og alle familien.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 08:12:09 / mirra

JÚ JÚ ég er á Lífi !!!

Þótt ótrúlegt sé þá er ég hér ætti reyndar að vera búin að gefast upp og vera farin til kanarý með fjölsk.....hvað er eiginlega með þetta veður ???

Maður fer nú að gefast upp ég verð nú að segja það því þetta er ekki eðlilegt hvernig þetta er búið að vera en maður verður víst að vera jákvæður og hugsa að allt tekur þetta enda ;)

Annars er sko allt bara gott að frétta frá eyjunni fögru ( þegar viðrar vel ) við erum sko komin í jólaskap og allt orðið svo jóló hjá okkur og bara allt að verða tilbúið . Ég fór til reykjavíkur um síðustu helgi og tók ég Alex og Sylvíu með mér og auðvita kom hún Þórína mín með okkur þetta var alveg frábær helgi og gerðum við sko margt og mikið verslað ég var reyndar ekki alveg fær í allar búðir því hnéið var ekki alveg til í að fara með mér í allar búið svo ég varð að setjasst niður reglulega svona til að hvíla mig aðeins en það var bara í góðu......... Við fórum með seinniferð á föstudegi og komum aftur heim með fyrri ferð á sunnudegi og gistum við hjá henni Hjöllu minni ( alltaf jafn gott að kúra þar ) og bauð Siggi okkur í mat á laugardeginum í rosa goðan mat Snillar kokkur þar á ferð ;)

Vikan er sko búin að líða hratt það er bara kominn föstudagur en hann Gabríel er búin að vera heim mest alla vikuna því hann náði sér í smá pest en er allur að koma til núna ............... hann er að fara í afmæli á morgun hjá honum Snorra frænda sínum og hlakkar honum mikið til en ég varð sko að sitja með honum heilan dag og útskýra fyrir honum afhverju Snorra afmæli væri núna um helgin ........ þannig er að þeir eru búnir að vera metast síðan þeir lærðu að tala um hvor er eldri því Gabríel a afmæli 22 des en Snorri er 30 des svo hann gabbi minn veit að hann er eldri en Snorri og á afmæli á undan Snorra en það hefur alltaf verið að hann Snorri er svolítið mikið stærri en Gabríel og finnst mínum það sko ekki í lagi en ég náði á sínum tíma að útskýra fyrir honum að hann sé samt eldri en síðan kemur boðskort að afmælið hans Snorra er á undan honum ogvarð hann sko ekki ánægður með það ............ ég átti bara að hringja út og bjóða í hans afmæli á undan en eftir mikið spjall tókst mér að útskýra þetta allt fyrir honum og er hann sáttur núna og bíður spenntur eftir að fara í afmæli síðan er sko talið niður í hans afmæli því minn bíður spenntur eftir að verða 5 ára og fá þá 5 ára sprautu eins og allir hinir á deildinni og ég tala nú ekki um þegar þessar tennur losna því það eru svo margir vinir hans búnir að missa tönn svo minn togar í sína á hverjum degi til að ath hvort þær séu ekki að losna........ hehehehehe........ hann er bara yndislegur !!

Jæja nú verðum við að fara græja okkur á leikskólann og út í þetta brjálaða veður en við ætlum að reyna setja inn fleiri frettir fljótlega af afmælisfjörinu og alles ........

 

þúsund kossar til ykkar Soffía og Gabríel


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 08:40:45 / mirra

Góðan daginn !!

Jæja þá er ég buin í aðgerðinni sem tókst bara mjög vel svo nú er bara að taka það rólega og slappa af ( sem er sko ekki auðvelt fyrir mig ) mig langar svo að stökkva á fætur og fara taka til og byrja skreita fyrir jólin en þó að ég myndi leggja mig alla fram við að koma mér á fætur þá bara get ég það ekki því ég er ekki nógu góð og á erfitt með að stíga í fótinn ;( en þetta kemur .

Gærdagurinn var ekki nógu góður ég var frekar slæm svo ég lá bara eiginlega allan daginn fór aðeins fram og horfði á eina mynd með Gumma og Gabríel ( Sylvía og Alex voru upp á landi að keppa en Alex kom heim með seinniferð í gær )en auðvita er sko stjanað við mann að ég er ekki að kunna við það að láta gera vson allt fyrir mig .........heheheheh........vil frekar fá að stjana við aðra !!! En feðgarnir fóru í búð og versluðu í matinn síðan elduðu þeir geggjaðan kjúllarétt með öllu tilheyrandi síðan þegar ég var búin að koma mér fyrir í stólnum í stofunni var manni fært súkkulaði og gos ;) svo é get sko ekki kvartða og myndi sko ekki reyna gera það því ég er svo heppin að eiga svona frábæra fjölskyldu :)

Síðan kom hann Alex heim með jólfinum með sko bros á vör og var það skiljanlegt því hann koma heim með gullið um hálsinn ...............jamm þeir unnu mótið GLÆSILEGT HJÁ YKKUR STRÁKAR !!!!

Síðan kemur daman heim í kvöld hef reyndar ekki heyrt í henni hvernig gengur en þeim gengur öruglega svaka vel því þessir krakkar mínir eru svo duglegir að ég er frekar montinn með þau !!!!

Jæja best að koma sér inn í rúm á ekki auðvelt með að sitja svona lengi en þetta kemur allt saman ég verð bara að læra hafa þolinmæði :lol:

Elsku Sverrir frændi mikið finnst mér gaman að sjá að þú sért að fylgjast með okkur hér á eyjunni , Knús og kossar til þín frá okkur !!!!

Við biðjum að heilsa

Soffía og alle familien.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 11:52:56 / mirra

Þó að það sé ekki ......

Létt að vera ég þá tekst mér það " ótrúlegt en satt " miða við allt sem er að ganga yfir mann :(

Maður er nokkuð hraustur allt sitt líf en síðan er bara allt í einu allt að manni og það bara gerist svona á einum mánuði .........en það hlaut að koma að því þar sem maður hefur ekki verið duglegur að slappa af og njóta lífsns .........en þegar allt þetta er farið og ég búin að fara í aðgerðina, sprautuna og myndatökuna þá ætla ég sko að fara læra það að slappa bara af og njóta lífsins með fjölskyldunni.........og ég tala nú ekki um þar sem jólin nálgast þá er sko eins gott að taka sé tak og fara slappa af svo maður keyri sig ekki yfir og hvíta fólkið kemur að sækja mann ( heheheheh góður þessi Fjóla ekki satt ??) Nei ég meina það ég verð að fara stoppa eðins og skoða hvað ég vil og hvernig ég vil hafa það annars !!!

En ég er eins og veðrið það er bara lægð eftir lægð en ég ætla að vera betri en veðrið og setja vegg á þessar lægðir takk fyrir tíu ;)

En annars er sko bara allt gott að frétta héðan af Birkihlíðnni krökkunum gengur voðaleg vel í skólanum og eru þau sko að brillera í prófum og öllu ( þau eru sko búin að ná sér úr sínum lægðum) svo það ætti ekki að vera erfitt fyrir mig að gera það sama ......... Núna er ég og strákarnir ein heim þar sem Sylvía og Gummi eru í keppnisferðalagi........hehheheh þá er ég sko að meina að hún Sylvía er að keppa í handbolta og Gummi fór með sem farastjóri og Bílstjóri honum Svavari tókst að plata Gumma með sér og 17 unglingstelpum !!! Jeminn þeir tveir og þær allar það verður sko eitthvað fjör væri alveg til í að vera lítil fluga á vegg og sjá það ganga .......Tísttttt æi ég veit að þetta á sko alveg eftir að ganga hjá þessum elskum :)

Jæja minnsti prinsinn heimtar að ég veiti honum athygli svo það er sko eins gott að gera það því annars er himinn og jörð farinn .................jamm hann þarf sko alla mína athygli eitthvað voðalega mikið sem er sko bara í lagi þar sem hann er unginn á heimilinu.

Við biðjum að heilsa í bili en látum heyra fljótt aftur í okkur og jamm meðan ég man þá er ég nýbúin að setja inn nýjar myndir hjá Gabba endilega kíkja og ekki gleyma að commenta og skrifa í gestabók.

Knús og fullt af kossum Sossa.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Geggjuð Bloggsíða !!!
Litlu Bloggararnir mínir
Góð grein !!!